Blogg

7.3.2010

skál!

..hvað er betra en að sitja fyrir framan tölvuna kl.8 á sunnudagsmorgni og börnin sofandi...hmm...rétt svar er margt og mikið. ..skál fyrir því.

Ég fékk loksins nettenginu aftur í gær, netið alltíeinu bara hætti að virka á þriðjudaginn og ég alveg eyðilögð alla vikuna. Merkilegt hvað maður er háður þessu neti..held ég sérstaklega þegar maður er svona LLAANNGGTT í burtu frá Íslandinu góða!! Ég er nú reyndar svosem enginn fíkill sko..hangi ekkert í tölvunni allan daginn, en það er nú bara nauðsynlegt að kíkja á mbl nokkrum sinnum á dag ..og auðvitað tjékka á fésinu..það er víst mesti félagsskapurinn sem maður fær þessa dagana!!
En við komumst síðan bara að því að eigandi hússins var að láta skipta um netfyrirtæki og var ekkert að hafa fyrir því að láta okkur vita af því en þetta er allt í góðu standi núna :).

Sá áðan á mbl að langflestir kusu NEI í gær og kemur ekkert óvart þar! Pólska útvarpið vildi fá mig í útvarpsviðtal í gær til að ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna..hahahahaha...sé mig í anda ræða þessi mál!!! ...hvað þá á ensku eða pólsku!!! Ég þakkaði nú bara pent fyrir..:)

Raffi er í keppnis og er leikur í beinni í sjónvarpinu í dag..bíð spennt eftir honum. Á von á vinkonu minn hérna til að horfa á leikinn, maðurinn hennar er í þjálfarateyminu. Spurning um að skella kannski í skúffuköku og kryddbrauð á eftir svona til að eiga eitthvað með kaffinu.

Annars hefur þessi vika verið frekar óskemmtileg. Elín Birna búin að vera lasin síðan á sunnudaginn, hefur verið með mikinn hita og ég bara dældi hérna í hana hitalækkandi allan sólarhringinn..var alltaf rokin uppí 39 bara med det samme. En hún var loks hitalaus í gær og svaf loksins eins og steinn alla nóttina núna í nótt. Heyrði hana ekki einu sinn hósta en hún er búin að vera með hrikalega ljótan hósta alla vikuna. Nú er svo Emilía Björk eitthvað óhress og pirruð, komin með hósta og kvef en vonandi sleppur hún við þennan hita. Hún svaf allavega í alla nótt..sofnaði reyndar ekki fyrr en að ganga 11 í gærkvöld og rumskaði svo ekki fyrr en 7 til að drekka..svo bara sofnaði hún aftur og sefur enn. Ég hefði betur bara skriðið uppí aftur og hallað augunum en ég nenni því ekki úr þessu....Elín Birna er líka akkúrat að vakna heyrist mér núna :). Best að fara og knúsa dömuna...síjú

Skrifað 7.3.2010 kl. 6:23 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

1.3.2010

lasarus

Við mæðgur erum bara að dúlla okkur hérna heima í dag. Elín Birna er búin að ná sér í pest og liggur hérna með 38,3 stiga hita..snúllan á bænum. Hún er búin að vera eitthvað að kvarta núna seinustu daga um að henni sé illt allsstaðar en svo kom hitinn í gærkvöldi. Ég skildi líka loksins í gær að henni var sennilega bara illt allsstaðar því ég var svoleiðis í gærkvöldi...vona að ég sleppi nú samt við þennan hita.
Það er frídagur hjá Raffa en hann er nú samt ekki heima. Hann fór til Lodz á eitthvað fótboltadæmi, fundur og eitthvað. Planið var að við færum öll og ég ætlaði með dömurnar að versla á meðan í uppáhalds mollinu mínu...en það verður bara að bíða betri tíma..mollið fer ekkert!!

Við fórum á völlinn á laugardaginn og endaði leikurinn með sigri okkar manna 1-0, glæsilegur leikur og mikil stemmning á vellinum. Ég reyndar arkaði heim með stelpurnar í hálfleik og horfði á seinni hálfleik í sjónvarpinu undir teppi..það varð alltíeinu svo kalt þarna í hálfleik þegar var byrjað að rökkva.

Veðrið er nú frekar óspennandi í dag, hávaða rok og rigningadropar. Allavega er þetta hávaða rok á pólskan mælikvarða og var nóg til þess að rafmagnið fór af núna eftir hádegi en það er nú komið aftur.

Ég var að skella myndum inná barnaland...af sætu dömunum mínum. Þeir sem vilja sjá mig verða bara að hringja í mig á skype :)

Skrifað 1.3.2010 kl. 13:29 af

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.2.2010

Michelsen :)

Jæja nú er vonandi vorið loksins komið. Yndislegt veðrið í dag, 8 stiga hiti og sólskin. Ég dreif mig á göngu eldsnemma í morgun með Emilíu Björk. Gangan átti að verða bæði löng í mínútum og í metrum en þurfti að láta langar mínútur duga því ég fékk svo hrikalegt hælsæri að ég meikaði enga hraðgöngu. Hoppaði inní næsta apótek sem ég sá til að kaupa mér plástur svona allavega til að ég kæmist heim. Ég reyndi tvisvar að stytta mér leið en maður á víst aldrei að stytta sér leið í hverfi sem maður þekkir ekki því í bæði skiptin endaði ég í stóru U og þar með lengdist gönguleiðin meir og meir. Ég komst loksins heim 2 klukkustundum síðar og gjörsamlega búin í fótunum. Það sem eyðilagði þessa göngu fyrir mér enn frekar voru helv.. bölvuðu hundaófétin sem gelta á mann eins og einhvern glæpamann þegar maður gengur fram hjá húsunum hérna,....arrrggg...gjörsamlega óþolandi.

Ég hef nú yfirleitt farið líka í smá seinniparts göngu með Elínu Birnu og kíkt á æfingu hjá kallinum í leiðnni en ég held ég sleppi því bara í dag. Á morgun er svo fyrsti leikurinn hjá honum í seinni umferðinni og fá þeir toppliðið í heimsókn og vonandi verður þetta hörkuleikur sem endar með heimasigri :). Leikurinn er kl. 16:15 og þar með ætla ég að drífa mig á völlinn með stelpurnar, sú stutta sefur þá bara í vagninum vonandi. Raffi ætlar svo að bruna til Lubin eftir leikinn og fara á leik þar á sunnudaginn og bruna svo bara til baka á sunnudagskvöldið. Ég hefði nú helst viljað komast til Lubin líka en nenni ekki að æða fyrir svona stuttan tíma. Ég ætla bara að skrifa lista fyrir hann yfir það sem hann á að koma með til baka...bíð spennt eftir þvi hvernig gengur hjá honum að finna hlutina og á ég von á svona 7 símtölum frá honum á sunnudaginn meðan hann tínir til dótið ..spurning um að láta teikningar fylgja listanum :) :).

Að lokum gleður mig að segja frá því að nú er ég formlega orðin Michelsen....gekk frá því loksins í gær...og ég kveð þá bara að sinni... Jakobína Gunnarsdóttir Michelsen :)

Skrifað 26.2.2010 kl. 12:14 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.2.2010

sólin skín :)

Já sæll..það er bara komin önnur vika áður en maður veit af..voðalega líður þetta hratt!

Í fréttum er þetta helst að Raffi kom heim á föstudagskvöldið og á laugardaginn vildi hann auðvitað gleðja elskurnar sínar og fór með okkur til Czestochowa sem er borg í ca klukkutíma fjarlægð og þar er nýbúið að opna flotta verslunarmiðstöð. Oh hvað ég elska svoleiðis daga :) Þarna yfirfórum við mollið á aðeins 8 klukkustundum! Ekki var nú planið að vera svona lengi þarna með dömurnar en þegar maður er á svona skemmtilegum stað þá bara flýgur tíminn. Ég áttaði mig svo ekki á því fyrr en ég settist í bílinn að ég fann ekki fyrir fótunum á mér lengur..hefði betur skilið hælaskóna eftir heima! En allavega..við náðum nú að versla slatta, föt og dót og skart og....já bara ýmislegt. Elín Birna keypti sér prinsessukjól og hún vil helst ekkert fara úr honum...er i prinsessuhlutverkinu hérna allan daginn :). Þarna var svo bestasta barnavöruverslun sem ég hef komið í og þar fékkst allt sem ég þarf að kaupa svona næstu mánuðina...svona þegar Emilía Björk fer að byrja að borða og svo nýjan bílstól fyrir Elínu Birnu þegar sú litla þarf að komast í hennar stól. Oh hvað ég hlakka til að fara og versla meira :)

Á sunnudaginn fórum við svo ömmurúnt til Lodz en stoppuðum bara stutt því við vildum komast heim á kristilegum tíma þennan daginn. Við stoppuðum aðeins í nýrri Ikea verslun á heimleiðinni. Við ætluðum að labba hring bara svona að gamni en það var svo gjörsamlega stappað þarna að við létum okkur nægja að gúffa í okkur sænskum kjötbollum og svo bara drifum við okkur heim. Held að málið sé að fara frekar þangað á mánudegi.

Elín Birna byrjaði á leikskólanum í gær og kom alsæl heim. Það var nefnilega vettvangsferð og hún fór rúnt á hestvagni og fleira skemmtilegt. Pabbi hennar fór með henni í ferðina. Í morgun var hann svo hjá henni fyrsta hálftímann og henni var alveg sama þótt hann færi í vinnu og skyldi hana eftir...greyið snúllan bara glöð að geta leikið sér við krakka en ekki bara mömmu sína!

Emilía Björk er bara alltaf jafn róleg og kát..hún bara sefur, borðar og brosir :). Hún er reyndar að drekka ansi ört þessa dagana..sennilega bara 3ja mánaða vaxarkippurinn!! Ég ætla að vera dugleg að fara með hana í langa göngutúra í kerrunni á morgnana og sjá hvort ég geti aðeins hrist af mér bumbuna! Það hefur verið fínt veður núna undanfarna daga, rétt um frostmark og sólskin þannig að snjórinn er byrjaður að bráðna. Vorið er að koma..vúúhúú :)

Jæja...þá er það hakk og spagettí..og svo er það enski boltinn í kvöld. Áfram júnæted :)

Skrifað 23.2.2010 kl. 14:13 af

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

12.2.2010

Já sæll..

..hélt það væri nú ekki svooona langt síðan ég bloggaði síðast! VÁ hvað tíminn líður hratt..sem er bara gott..en samt ekki því þá eldist ég hraðar!
Allt í gúddí hér á bæ. Við skvízurnar þrjár erum einar heima. Rafal fór til Kýpur um seinustu helgi í æfingabúðir..þar er hann í 18 stiga hita og sól núna. Þeir áttu að koma heim næsta miðvikudag en bættu núna við tveimur dögum þar sem allt er á kafi í snjó hér og erfitt að finna velli til að æfa á.

Við Elín Birna sitjum hér og bíðum eftir pizzunni og Emilía Björk sefur....yndislegur ilmur :)

Við mæðgur skruppum aðeins í búð í dag..bara labbandi með þá yngstu í magapokanum. Það er voða þægilegt þar sem við búum bara hér við aðalverslunargötuna og stutt í allar búðir! Það er nýbúið að opna hérna uppáhalds barnafatabúðina mína..kíktum aðeins í hana og auðvitað bara réði ég ekki neitt við veskið og keypti nokkrar flíkur á stelpurnar. Ótrúlega gaman að versla föt...LOVE IT!! Svo fórum við og keyptum smá matarkyns..sem er ekki eins gaman. Keypti rjóma svo ég geti bakað bollur um helgina..keypti handþeytara líka svo ég geti þeytt rjómann þar sem allt mitt bökunardótarí er í Lubin. BOLLA BOLLA BOLLA!

Jæja..ofninn byrjaður að pípa..pizzan klár. Setti myndir áðan á barnaland. Verði okkur að góðu..og ykkur líka. Síjú.

Skrifað 12.2.2010 kl. 15:42 af

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

29.1.2010

ÁFRAM ÍSLAND!

Skoða nánar

24.1.2010

Annar i nammidag :)

Skoða nánar

22.1.2010

Jarðskjálfti

Skoða nánar

16.1.2010

Kuldi kuldi kuldi

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 23
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 49
Gestir í gær: 15
Samtals flettingar: 60310
Samtals gestir: 21666
Tölur uppfærðar: 15.3.2010 09:31:56